Plaststeyputækni
framleiðslu og merkingarferli
Til að ná árangri í harðri samkeppni á markaði skiptir útlit vöruumbúða miklu. Hér er það sem steypumerking er framúrskarandi valkostur í stað hefðbundinna aðferða við merkingu umbúða. Við steypumerkingu er háþróaðri tækni beitt við merkingu. Fullhönnuð merking á miða er staðsett beint í plaststeypumót með sérstökum robot. Útkoman er full merkt vara sem er tilbúin til afgreiðslu um leið og umbúðin er steypt.
Kostir þess að nota steypumerkingatækni:
- Steypumerking tryggir framúrskarandi gæði í merkingu plastumbúða sem ekki er hægt að ná fram með hefðbundinni prentun.
- Með steypumerkingatækni er hægt að merkja alla (fimm) ytri fleti umbúðar í einni aðgerð.
- Ódýr kostur fyrir mikil gæði
Hitaformunartækni (thermoforming)
Hitaformun er framleiðsluferli sem breytir forhitaðri plastfilmu í formaðar umbúðir. Hitaformun er frábrugðin annars konar mótunarvinnslu úr plasti, aðferðin er aðallega notuð í framleiðslu á einnota umbúðum sem eru lítið eða óverulega merktar.
Aðferð og einkenni hitaformunartækni:
- Notuð er þunn hitaþjál plastfilma. Plastfilma er hituð áður en hún er mótuð.
- Hægt er að framleiða einföld form með umtalsverðum afköstum.
- Formuð vara hefur ekki samræmda þykkt.
- Merking vöru þarf að eiga sér stað eftirá.
- Auðvelt er fyrir notanda að merkja vöru sína að vild.
- Kostnaður er hóflegur þegar um er að ræða umtalsvert magn.